Ásett verð 74.900.000 kr.
Byggt 2024
119,8 m²
4 herb.
3 svefnh.
1 baðh.
Lýsing
Myndir
Uppl. fyrir kaupendur
Fasteignasala Austurlands kynnir nýja, vandaða og viðhaldslétta parhúsíbúð á Eskifirði.
Íbúðin afhendist fullbúin að utan sem og innan með steyptu bílaplani og frágenginni lóð.
Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is
Ystidalur 5a, Eskifirði: Um er að ræða 4ra herbergja nýbygginu með mikilli lofthæð, 119,8m2 parhúsíbúð á einni hæð. Leikskólinn svo gott sem hinumeginn við götuna og sundlaug bæjarins nánast í bakgarðinum.
Eignin skiptist upp i forstofu, opinn gang, eldhús og stofu í góðu opnu rými, 3 svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Húsið er klætt með vandaðari grárri klæðningu (Cembrit sementsplötur). Þakkantur er klæddur með svörtu blikki.
- Húsið er hannað með gott hjólastólaaðgengi í huga
- Gólfhiti með þráðlausum stýringum er í flestum rýmum eignarinnar
- Innréttingar eru sérsmíðaðar hjá Trévangi
- Á gólfum er hágæða vinilparket frá Gerflor en flísar á forstofu og votrýmum
- Steypt bílaplan með ruslatunnuskýli
Rúmgott fjölskylduhús á frábærum stað!
Forstofa: Er nokkuð rúmgóð, flísalögð. Góðir fataskápar.
Eldhús: Er í opnu alrými ásamt stofu. Eldhúsinnrétting og eyja sérsmíðaðar hjá Trévangi.
Stofa/borðstofa: Gott opið rými samtengt eldhúsi með útsýni til austurs út um stóra, gólfsíða glugga. Eikarlitar hljóðplötur í loftum.
Þvottahús: Flísalagt eins og forstofa, góð sérsmíðuð innrétting frá Trévangi ásamt vaski.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi, 14,4m2. Vinilparketlagt með stórum og góðum fataskápum.
Svefnherbergin: 2 svefnherbergi utan hjóna, bæði með hágæða vinilparketi og tvöföldum fataskápum frá Trévangi.
Baðherbergi: Þar eru flísar á gólfi, walk-in sturta með sturtugleri, rúmgóð innrétting og upphengt salerni.
Geymsla: Flísalögð geymsla, 4,1m2 að flatarmáli.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:
Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% (fyrstu kaupendur) 0,8% (einstaklingar) 1.6% (lögaðilar).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 59.900 m/vsk.
5. Skipulagsgjald - 0,3% af brunabótamati þegar þess verður krafist
(á einungis við um nýbyggingar)
-----
Skoðunarskylda kaupenda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Fasteignasala Austurlands skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir
kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
STAÐSETNING EIGNAR