Atvinnuhúsnæði
Hermes | Reyðarfjörður
Atvinnuhúsnæði
Hermes | Reyðarfjörður

Ásett verð TILBOÐ

Byggt ca. 1929

291,3m²

Sjá teikningu

Sjá teikningu

2 baðh.

Fasteignasala Austurlands kynnir Búðareyri 4, Reyðarfirði (Hermes)


Hér er um að ræða glæsilegt eldra hús með skráð byggingarár 1929 en talið er að húsið sé nokkuð eldra en það.

Húsið hefur nýlega verið innréttað upp á nýtt með skrifstofuaðstöðu í huga. Sú endurinnrétting er mjög vel heppnuð og sameinar nútíma þægindi og gamlan stíl hússins á smekklegan hátt.


EIGNIN ER LAUS TIL SÖLU EÐA LEIGU

Allar nánari upplýsingar veitir Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


Rishæðin telur 4 rúmgóð herbergi, salerni og svo eldhús með lítilli innréttingu og vaski. Gangur er eftir rishæðinni miðri og eru dyr út á svalir við enda gangsins. Háaloft er yfir rishæðinni og er haganlegur stigi sem er hægt að nota til að komast þangað upp.


Miðhæðin skiptist í stórt samliggjand rými þar sem finna má skrifstofur, afstúkað rými sem nýta má sem móttöku, eldhús með lítilli innréttingu með vaski en engum eldunartækjum. Hár eldhússkápur er einnig í eldhúsinu ásamt innbyggðum ísskáp. 2 forstofur eru á hæðinni ásamt lítilli ræstikompu og snyrtingu.


Kjallari er undir öllu húsinu og er mjög góð lofthæð í stærstum hluta hans. Ekki er innangengt í kjallarann sem hefur ekki verið innréttaður upp á nýtt.


Þar er komið inn í óinnréttað rými þar sem m.a. er kyndiklefi. Nokkra geymslukompur eru í kjallaranum en 2 rúmgóð herbergi

og var annað notað sem skrifstofa. Kjallarinn býður upp á ýmsa möguleika og hægt að innrétta nokkur góð herbergi þar.


Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við: 

Heimir Arnfinnsson lfs. // 583-2500 // heimir@fastaust.is


STAÐSETNING EIGNAR

Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar

📞 583 2500        ✉️ heimir@fastaust.is

Fleiri eignir í nágrenninu